Blaðsíður: 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 ... 62 >>

17.11.08

Varanlegur tengill 22:47:49, eftir beggi Tölvupóstur , 206 orð   Icelandic (IS)
Flokkur: Þjóðfélagsmál

Enn er mótmælt

Mætti að sjálfsögðu á Austurvöll síðastliðinn laugardag eins og allir viti bornir menn1. Mætti svo í kvöld á borgarafund í þau húsakynni sem mínum huga heita Sigtún og ég borðaði stundum í þegar höfðustöðvar Símans voru enn í Landssímahúsinu. Á fundinum var fjölmenni og var fundurinn ágætur. Ágætir frummælendur og fjölmiðlamenn ágætir líka. Játuðu á sig aumingjaskap og var gerður ágætur rómur að því.

Stefnan er sett á Háskólabíó næsta mánudag svo það er eins gott að allir mæti þá.

Mér var bent á það á laugardaginn að merki Landsbankans er horfið af gamla Landssímahúsinu en það var nokkuð áberandi séð frá Austurvelli. Ætli það hafi verið tekið til þess að mannfjöldinn beindi ekki reiði sinni að því húsi?

Ég er reyndar afar ósáttur við að fólk sé að henda matvælum í Alþingishúsið. Í fyrsta lagi er heimskulegt að henda ætum matvælum og í öðru lagi trúi ég því staðfastlega að hús séu yfirleitt saklaus.

1. Í íslensku máli hagar svo til að konur eru líka menn

14.11.08

Varanlegur tengill 19:56:20, eftir beggi Tölvupóstur , 45 orð   Icelandic (IS)
Flokkur: Bull og þvaður

Dýrðin, dýrðin

Ég er úr sveit og þekki hljóð í fuglum ágætlega. Enginn sérfærðingur kannski en þokkalegur. Þessi fuglahljóð í Útsvarinu voru út í hött. Hás hrafn, undarleg lóa og svo fjöldi fugla þar sem spóinn var bara stundum mest áberandi.

Varanlegur tengill 13:58:30, eftir beggi Tölvupóstur , 82 orð   Icelandic (IS)
Flokkur: Bull og þvaður

Á morgun, laugardag

Mætum við hinsvegar öll á Austurvöll klukkan 15:00 og mótmælum ástandinu í þessu þjóðfélagi sem er augljóslega stjórnað af aulum.

Democracy is a device that ensures we shall be governed no better than we deserve.

er haft eftir George Bernard Shaw. Í þessum orðum fellst ekki að við fáum þá stjórn sem við eigum skilda, heldur einungis að hún sé ekki betri. Eins og dæmin sanna getur hún verið snöggt um verri.

Varanlegur tengill 13:20:17, eftir beggi Tölvupóstur , 36 orð   Icelandic (IS)
Flokkur: Þjóðfélagsmál

Auglýsing um borgarfundinn

Ég klúðraði víst dagsetningunni á borgarafundinum í síðustu færslu. Takk Hildigunnur fyrir að benda á það.

Auglýsingu á pdf-formi má finna hér. Legg til að sem flestir prenti hana út og hengi upp.

Varanlegur tengill 11:03:24, eftir beggi Tölvupóstur , 274 orð   Icelandic (IS)
Flokkur: Þjóðfélagsmál

Allir í Nasa á Mánudaginn!

ÞETTA ER Á MÁNUDAGINN

OPINN BORGARAFUNDUR #3

á NASA við Austurvöll, mánudaginn 17. nóvember klukkan 20:00.

Í pallborði verða ritstjórar og fréttastjórar helstu fjölmiðla landsins, auk fulltrúa frá Blaðamannafélagi Íslands.

Hvetjum ríkisstjórn Íslands og alla alþingismenn til að mæta á svæðið, hlusta á sína kjósendur og vera með í umræðunni. Hvetjum ennfremur alla fjölmiðlamenn og konur til að mæta og taka þátt.

Til hvers?
- Til að hinn almenni borgari geti komið hugmyndum sínum og skoðunum á framfæri á óvissutímum.

- Öllum stjórnmálamönnum, seðlabankastjórum, bankastjórum, fréttastjórum og öðru fjölmiðlafólki er boðið að mæta til að svara spurningum Íslendinga, milliliðalaust.

- Til að almenningur fái skýr skilaboð og sé ekki hafður útundan í umræðunni.

- Til að leita spurninga og svara um efnahagsástandið.

Fyrirkomulag:
Fjórir frummælendur hefja umræðuna (5 mínútur hver):

Irma Erlingsdóttir, bókmenntafræðingur
Eggert Briem, stærðfræðingur
Björg Eva Erlendsdóttir, blaðamaður
Davíð A. Stefánsson, bókmenntafræðingur

Þegar frummælendur hafa lokið máli sínu er orðið gefið laust og hver sem vill fær tvær mínútur til að tjá sig úr sal eða spyrja þátttakendur í pallborði spurninga.

Fundarstjórn og tímavarsla verður sem fyrr tekin föstum tökum í nafni lýðræðislegrar umræðu.

Sýnum stuðning með þátttöku – spyrjum og heimtum svör – látum í okkur heyra.

Við ítrekum breyttan fundarstað. Hittumst á NASA kl. 20:00.

1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 11 ... 62 >>